Vaktnúmer á HVE
Tekið hefur verið í notkun nýtt vaktnúmer utan dagvinnutíma, 1700. Þegar hringt er í 1700 svarar hjúkrunarfræðingur sem veitir ráðgjöf, leiðbeinir hvert leita skal í heilbrigðiskerfinu eða gefur símann áfram til læknis á viðkomandi heilsugæslustöð þegar tilefni er til. Athugið að þetta númer skal aðeins nota utan dagvinnutíma.
Eftirfarandi er í gildi á starfssvæði HVE
-
Neyðarnúmer er 112. Hringja skal í það ef um slys eða bráð veikindi er að ræða.
-
Á dagvinnutíma, þ.e. kl. 08:00 – 16:00 alla virka daga, skal hringja í viðkomandi heilsugæslustöð á HVE og fæst þá samband við lækni eða hjúkrunarfræðing eftir ástæðum.
-
Utan dagvinnutíma 1700. Hjúkrunarfræðingur svarar og veitir ráðgjöf, leiðbeinir hvert leita skal í heilbrigðiskerfinu eða gefur símann áfram til læknis á viðkomandi heilsugæslustöð þegar tilefni er til. Athugið að þetta númer skal aðeins nota utan dagvinnutíma.
-
Athugið að um helgar, helgidaga og almenna frídaga er opið fyrir 1700 allan sólarhringinn.