Velkomin á vef HVE Hvammstanga
HVE Hvammstanga skiptist í sjúkrahús og heilsugæslustöð og þjónar Hvammstangalæknishéraði sem er Húnaþing vestra og Bæjarhreppur í Strandasýslu. Fjöldi íbúa er u.þ.b. 1250.
Heilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa heilsugæsluumdæmis Hvammstanga.
Á sjúkrahúsinu eru 24 hjúkrunarrými og 3 sjúkra- og bráðarými. Einnig er boðið upp á dagþjónustu fyrir eldra fólk í héraðinu.
Starfsmenn HVE Hvammstanga eru í kringum 50 talsins.
Síðast uppfært 10.05.2010