Velkomin á vef HVE Akranesi

 

HVE Akranesi skiptist í sjúkrahús og heilsugæslustöð.

 

Heilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness og hefur jafnframt forystuhlutverk varðandi heilsuvernd og forvarnarstarf. 

 

Sjúkrahúsið er deildaskipt sjúkrahús. Aðal upptökusvæðið er vestur- og norðvesturhluti landsins.  Veitt er fjölþætt sérfræðiþjónusta með viðbúnaði til móttöku og meðferðar bráðveikra allan sólarhringinn.  Íbúum höfuðborgarsvæðisins og öðrum landsmönnum er í vaxandi mæli boðin sérfræðiþjónusta í tilteknum greinum. 

 

HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir.   Starfsmenn HVE Akranesi eru um 240 talsins. 

 

Síðast uppfært 11.05.2010


 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.4306000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE